Morgunmatur

Litlar granóla skálar með grísku jógúrti

June 8, 2022
granóla skálar

– Unnið í samstarfi við Gott í matinn –

Þessar sniðugu og fallegu granólaskálar eru fullkomnar fyrir helgarmorgunmatinn og brönsinn en þær eru allt í senn fallegar, hollar og dásamlega góðar. Sniðugt er að útbúa skálarnar með smá fyrirvara og þá er bara skella smá grískri jógúrt ofan í, skreyta og bera fram.

granóla skálar
granóla skálar

Granóla skálar með grísku jógúrti – 12 stk –

4 dl hafrar
1 dl kókos
½ dl muldar heslihnetur
1 dl kókosolía
½ dl hlynsíróp
smá salt

2 dósir af grískri jógúrt með súkkulaðiflögum
hnetusmjör
bláber

Stillið ofn á 150°c. Setjið öll þurru hráefnin saman í skál, bræðið kókosolíuna og blandið saman við ásamt hlynsírópinu og ekki gleyma smá salti.

Takið muffins form, ég nota sílikon form sem rúmar 12 kökur. Setjið 1½- 2 msk í hvert form og þrýstið niður og meðfram hliðum svo það myndast skál.

Bakið í ofni í 15 mín og leyfið að kólna.

Hrærið aðeins í grísku jógúrtinni og setjið eina vel stóra msk ofan í hverja skál. Drisslið smá hnetusmjöri yfir og skerið bláber til að skreyta. Geymið í kæli.

Njótið!
– Ertu að fylgjast með á Instagram Döðlur & smjör ? –

You Might Also Like