Eftirréttir

Sítrónu skyr eftirréttur

April 2, 2024
skyr

Samstarf // Gott í matinn

Það hefur verið smá lægð yfir skyrinu okkar sem sætur réttur. Skyrkakan var algjör go to saumaklúbbs kakan fyrir nokkrum árum en kannski overdose-um við af henni á sínum tíma. Nei það er varla hægt! Mér finnst skyr einmitt fullkomið í eftirrétti og léttar kökur ekki of sætt en samt nógu sætt.

Að þessu sinni ákvað ég að gera þennan dásamlega eftirrétt sem er léttur, sætur og smá súr. Skemmtilegur réttur sem er hægt að leika sér með og gera allt frá grunni svo er bara hægt að skella í skyrið og kaupa sítrónusmjörið og marengsinn tilbúinn, allt eftir ykkar tempói.

Góð hugmynd er líka að útfæra í litlar skálar og bera fram í veislu.

skyr
skyr

Skyr með hvítu súkkulaði og sítrónusmjöri – fyrir 6 –

150 g LU kex

50 ml mjólk
100 g hvítt súkkulaði
1 tsk vanilludropar
500 g vanilluskyr

Myljið kexið í matvinnsluvél eða í poka og með kökukefli. Dreifið í botn á sex skálum.

Setjið mjólk og súkkulaði saman í skál og bræðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði þangað til það er bráðið. Bætið vanilludropum saman við og leyfið kólna lítillega. Setjið saman í skál súkkulaðiblönduna og skyrið og hrærið vel saman. Gott er að hella í sprautupoka og þannig í glösin, hellið jafnt í glösin, setjið inn í kæli og kælið í 2-3 klst.

Sítrónusmjör

40 g sítrónusafi
1 tsk sítrónubörkur
20 g smjör, við stofuhita
1 egg, við stofuhita
1 eggjarauða
55 g sykur

Allt sett í blandara og blandað saman þangað til að öll hráefnin hafa blandast vel saman, það á það til að skilja sig í upphafi þá er bara að halda áfram að blanda þangað til allt er rennislétt. Þá er blandan sett í pott á lágan hita og hrært í öðru hverju. Eftir smá tíma fara að myndast þykkar búbblur sem segir til að það er byrjað að þykkna, hrærið aðeins og takið svo af hellunni og hellið í hreint ílát og leyfið að kólna.

Svisssneskur marengs

2 eggjahvítur
½ tsk cream of tartar
100 g sykur
1 tsk vanilludropar
klípa af salti

Öllu blandað saman í skál og sett yfir vatnsbað s.s. pott með vatni í miðlungshita. Hitið þangað til að blandan er 71°c eða þangað til að þið getið sett dropa á puttann og nuddað saman og þið finnið ekki lengur sykurkorn.

Setjið þá í hrærivél og hrærið þangað til að marengsinn er orðinn stífþeyttur.

Hér er einnig hægt að nota tilbúinn marengs frá Dr Oetker.

Takið skyrið úr kæli og setjið rúma matskeið í hvert glas og dreifið úr með skeiðinni. Setjið marengsinn í sprautupoka og sprautið yfir. Til að gera hann extra fínan er hægt að nota brennara til að brenna hann aðeins. Þið fáið svona litla brennara í búðum eins og Fjarðarkaup, Byggt & Búið, Bast og ótal fleiri stöðum.

Skreytið með bláberjum eða því sem ykkur finnst passa með.

Berið fram og njótið!

You Might Also Like