Kökur

Jógúrt kaka með hvítu súkkulaði

March 17, 2022
jógúrt kaka með hvítu súkkulaði

– Unnið í samstarfi við Gott í matinn –

Íslendingar hafa síðast liðin ár svolgrað í sig ógrynni af skyrtertum skiljanlega þær eru svo léttar og góðar. En hérna kemur keppinautur við þær! Jógúrt kaka með grískri jógúrt sem gerir hana svo bragðgóða, mild og létt í maga OG hún heldur svo fallegu formi en mín reynsla er að skyrkökurnar eru bestar bornar fram í fati þar sem þær ná oft ekki að standa vel sjálfar.

Þessi kaka er eins og ég sagði einstaklega mild og góð og hægt að leika sér með hana eftir smekk. Bæta við hana berjum, súkkulaði, karamellu eða því sem hugurinn girnist.

grísk jógúrt kaka

Jógúrt kaka með hvítu súkkulaði

200 g graham kex
100 g smjör
1 dl ristaður kókos

250 ml rjómi
350 g grísk jógúrt
2 msk flórsykur
100 g hvítt súkkulaði

Setjið kexið í matvinnsluvél, myljið og setjið í skál. Setjið kókosinn í matvinnsluvél ef þið eruð með flögur annars bætið þið beint saman við kexmulninginn. Bræðið smjörið og blandið vel saman við kexið og kókosinn.

Takið 18 cm form, gott að setja bökunarpappír eða plastfilmu í botninn og setjið blönduna í botninn og þrýstið vel niður og með fram hliðum. Kælið í ísskáp meðan fyllingin er gerð.

Þeytið rjómann í einni skál, blandið saman grískri jógúrt og flórsykri í annarri og bræðið hvítt súkkulaði inn í örbylgju í þeirri þriðju.

Blandið þá saman þeytta rjómanum saman við grísku jógúrtina með sleikju. Hrærið í súkkulaðinu og passið að það sé allt bráðið, þá er gott að taka smá skammt af grísku jógúrtinni og rjómanum og blanda saman við súkkulaðið og bætið saman við í smá skömmtum þar sem súkkulaðið er heitt og blandan er köld. Blandið síðan öllu saman og hrærið vel. Hellið þá fyllingunni yfir kexbotninn og kælið í 3-4 klst minnst.

Takið kökuna varlega úr forminu og dreifið hindberjum eða jarðaberjum yfir. Þá er bara að bera hana fram!

Njótið!

– Ertu að fylgjast með á Instagram Döðlur & smjör ? –

You Might Also Like