Kökur

Pavlova með súkkulaði og hindberjum

April 4, 2022
pavlova

– Unnið í samstarfi við Gott í matinn –

Einhverja vegna finnst mér eitthvað páskalegt við marengs kökur. Léttar, sætar og svo bragðgóðar!

Kosturinn við þær hvort sem það er minn klassíski marengs eða dýrindis pavlova er að það auðvelt að baka þær fyrirfram og setja á þær áður en þær eru bornar fram eða vissulega betra gera það deginum áður með marengs en með pavlovuna er bara að græja fyllinguna áður en gestirnir koma eða áður en hellt er upp á kaffið.

& hér þarf enga reglustiku eða nákvæmni, fyllingunni bara skellt í og berjunum og eggjunum bara raðað óreglulega yfir, því ófullkomnara því betra. Hún mun bragðast dásamlega burt séð frá útliti!

pavlova
pavlova
pavlova

Pavlova

4 (150 g) eggjahvítur
hnífsoddur af salti
60 ml kalt vatn
250 g sykur
1 tsk edik
1 tsk vanilludropar
1 1/2 msk maíssterkja (maizena)

Stillið ofninn á 135°c. Hrærið saman eggjahvítum og salti saman þar til þær eru orðnar léttþeyttar. Stillið á lága stillingu og hellið köldu vatni í mjórri bunu saman við eggjahvíturnar og sykrinum í framhaldi. Stífþeytið, þar til hægt er að hvolfa skálinni án þess að einhver hreyfing sé í skálinni. Blandið þá saman ediki, vanilludropum og maíssterkjunni saman við með sleikju.

Gott er að teikna hring á bökunarpappír til þess að hafa til viðmiðunar þegar pavlovan er mótuð. Tæmið úr skálinni á bökunarpappírinn og mótið í hring, hugsið um að gera eldfjall. Há pavlova með gíg í miðjunni. Þegar þið hafið mótað að mestu, rennið með spaða upp með hliðunum til að fá hana slétta og fallega. Lækkið hitann í 120°c og bakið í 60 mín- Bannað að opna ofninn meðan pavlovan bakast. Slökkvið á ofninum og leyfið henni að vera þar í nokkra stund. Miðjan mun falla mögulega en það er í góðu lagi og gefur rými fyrir fyllingu.

Fylling

100 g dökkt súkkulaði
100 g rjómaostur
400 ml rjómi

4 msk hindberjasulta
bláber
frosin eða fersk hindber
bláber
Cadbury mini eggs

Bræðið súkkulaðið og blandið rjómaostinum rólega saman við. Ef rjómaosturinn er kaldur er gott að setja í nokkrar sek í örbylgjuna aftur. Létt þeytið rjómann og blandið súkkulaði og rjómaostinum saman við með sleikju.

Samsetning

Takið pavlovuna og setjið á disk. Setjið hindberjasultu í miðjuna á pavlovunni og dreifið eins og þið getið. Þá er bara að setja súkkulaðirjómann í miðjuna og svo bara skella honum ofan á, dreifið úr honum með sleikju. Skerið hluta af berjunum í tvennt og skreytið með berjunum og súkkulaði eggjunum. Ef hindberin eru frosin er fallegt að kremja þau svo þau bútist niður en þau mega ekki verið farin að þiðna því þá verða þau bara mauk.

Njótið!

– Ertu að fylgjast með á Instagram Döðlur & smjör ? –

You Might Also Like